Skilmálar
Skilmálar þessir gilda um sölu á vöru og þjónustu Svartbergs ehf. til neytenda.
Búagrund 2, 116 Reykjavík
Netfang: svartberg@svartberg.is
Sími: +354 776 7895
Svartberg ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.
Greiðsluleiðir
- vefverslun med greiðslukorti og greiðsla fer í gegnum greiðslusíðu hjá Valitor
- millifærsla á reikning 0133-15-002299, kt. 540222-0610
- krafa í heimabanka
Við kaup á mótorhjóli þarf að greiða 15% staðfestingargjald af verði við pöntun.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðarskilmálar eru samkvæmt íslenskum neytendalögum.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.
Afhendingarskilmálar
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Svartberg ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Svartberg ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Trúnaður (öryggisskilmálar)
Svartberg ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við
viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.